19.9.2008 | 00:17
Smá pólitík
Ekki hef ég verið hrifin af Davíð Oddsyni hingað til en viðtalið við hann í dag var nú bara nokkuð magnað ég verð nú bara að segja það
ég er svo innilega sammála því að yfirmenn bankanna bera svo sannarlega ábyrgð á sínum gjörðum og eiga sannarlega að taka ábyrgð á þeim.
Eru þeir ekki alltaf að stæra á flottum og ábyrgum greiningardeildum ég held þeir ættu þá að láta fólkið sem vinnur þar vinna fyrir kaupinu sínu og hætta að spá útí lofið eða endalaust að reyna að sannfæra okkur almenning að þeir hafa spáð þessu og hinu og sitja svo í súpunni og ætlast til að ríkið eða seðlabankinn eigi að redda sér úr klípunni
Þessir stjórnarmenn eru gjörsamlega búnir að hirða milljónir úr bönkunum í eigin vasa og skammast sín ekkert fyrir það
það þurfti útgerðarmann utan af landi til þess að taka til í einum þeirra (Hvað segir það okkur)
Út með skjalatöskurnar og inn með hugsandi og duglega menn sem vinna fyrir kaupinu sínu
17.9.2008 | 00:35
Féló hvað?
Nú er mér nóg boðið
Hvað er eiginlega í gangi hérna á þessari eyju okkar?
Það er alveg sama hversu mörg ár líða og hvað ég eldist og þroskast aldrei ætla þessir hlutir að lagast eru allir stjórnmálamenn og konur sofandi eða er þessi málaflokkur svona hrikalega lítils gildur að við getum látið aðgerðarleysið blómstra endalaust?
Ég bara skil ekkert í þessu apparati sem í daglegu tali kallast Féló
Hverjir vinna eiginlega við þetta? er ekki hægt að fylgjast með fólki sem við borgum fyrir að passa börnin okkar, þegar það þarf að senda þau af heimilum sínum og út í einhverja sveit.
Fyrir tuttugu árum var náin fjölskyldumeðlimur sendur í sveit samkvæmt ráði Féló. Hann kom heim eftir 4 mánuði og hafði aldrei verið boðið af baða sig eða með öðrum orðum þá var bara ekkert bað á bænum.
í dag heyri ég af dreng sem á að senda í sveit samkvæmt tillögu frá þessu frábæra apparati og viti menn bóndabærinn er svo sóðalegur og illa lyktandi að ég myndi ekki einu sinni bjóða hundinum mínum í heimsókn(og voru þó margir slíkir á svæðinu) bæði inni og úti
Hverjir vinna eiginlega við þetta?
Er ekki skárra að sleppa þessu heldur enn að brjóta þessa krakka algjörlega niður með þessu virðingarleysi.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

